Myndskeið og myndir gera kynningu lifandi. Hér setjum við YouTube-myndskeið inn á skyggnu, veljum hvaða hluti þess er spilaður og sækjum ljósmynd sem má nota.

  1. Settu inn myndskeið

    Veldu skyggnuna og opnaðu Setja inn → Myndskeið.

    Valmyndin Setja inn með Myndskeið
  2. Finndu myndskeiðið á YouTube

    Skrifaðu leitarorð í reitinn efst og ýttu á Enter, eða límdu inn vefslóð myndskeiðs. Smelltu á myndskeiðið og svo á Setja inn. Undir Google Drive getur þú líka sett inn myndskeið sem þú hefur tekið upp.

    Leitarniðurstöður af YouTube með einu myndskeiði völdu
    Ábending: Það er fljótlegast að finna myndskeiðið fyrst á YouTube, afrita vefslóðina og líma hana inn í reitinn.
  3. Veldu hvaða hluti er spilaður

    Spjaldið Valkostir sniðs opnast hægra megin. Undir Byrja á og Ljúka á skrifar þú tímann sem myndskeiðið á að byrja og enda á. Þá sjá nemendur aðeins þann bút sem skiptir máli. Í fellilistanum fyrir ofan velur þú hvort myndskeiðið spilast við smell eða sjálfkrafa.

    Valkostir sniðs með Byrja á 02:00 og Ljúka á 04:30
    Ábending: Með Slökkva á hljóði spilast myndskeiðið án hljóðs, t.d. ef þú vilt tala yfir það.
  4. Sæktu ljósmynd

    Opnaðu Setja inn → Mynd → Lager og vefurinn. Þú getur líka hlaðið inn mynd úr tölvunni eða sótt hana úr Drive.

    Valmyndin Mynd með Lager og vefurinn
  5. Veldu mynd af ljósmyndalager

    Skrifaðu leitarorð í spjaldið hægra megin. Undir Myndir af ljósmyndalager eru myndir sem má nota í kynningum. Þar eru líka GIF-myndir og Límmiðar. Smelltu á mynd til að setja hana inn á skyggnuna.

    Spjaldið Lager og vefurinn með myndum af eldfjöllum
    Ábending: Leitin virkar best á ensku, t.d. volcano í stað eldfjall. Nánar um stærð, skurð og textaflæði mynda í leiðbeiningunum Myndir í Google Docs. Það virkar eins í Slides.
ESC
↑↓ til að velja Enter til að opna Esc til að loka