Hér setjum við mynd inn í skjal, minnkum hana, látum textann flæða í kringum hana og skerum burt það sem við viljum ekki hafa með.

  1. Veldu hvaðan myndin kemur

    Smelltu þar sem myndin á að koma og opnaðu Setja inn → Mynd. Þar getur þú valið:

    • Hlaða inn úr tölvu: mynd sem er vistuð í tölvunni
    • Leita á vefnum: leit í Google-myndum
    • Drif eða Myndir: myndir úr Google Drive eða Google Photos
    • Myndavél: tekur mynd með vefmyndavélinni
    • Af slóð: ef þú ert með vefslóð myndar
    Valmyndin Setja inn, Mynd með valkostunum
    Ábending: Þú getur líka dregið mynd beint úr möppu í tölvunni inn í skjalið eða límt hana inn með Cmd+V (Mac) eða Ctrl+V (Windows).
  2. Leitaðu að mynd á vefnum

    Með Leita á vefnum opnast spjaldið Google-myndir hægra megin. Skrifaðu leitarorð og ýttu á Enter. Smelltu á eina eða fleiri myndir og svo á Setja inn.

    Spjaldið Google-myndir með leitarniðurstöðum og einni mynd valinni
    Ábending: Leitin skilar oft fáum eða engum niðurstöðum á íslensku. Prófaðu þá ensk leitarorð, t.d. tent lake í stað tjald við vatn.
    Ábending: Notaðu aðeins myndir sem þú mátt nota. Á unsplash.com eru þúsundir ljósmynda sem nota má án endurgjalds. Sæktu myndina og settu hana inn með Hlaða inn úr tölvu.
  3. Breyttu stærð myndarinnar

    Smelltu á myndina. Bláir ferningar birtast á hornum og hliðum. Dragðu hornin inn til að minnka myndina án þess að hún aflagist. Með hliðunum teygir þú myndina eða klemmir hana saman.

    Valin mynd með bláum ferningum á hornum og hliðum
  4. Láttu textann flæða í kringum myndina

    Þegar myndin er valin birtist lítil tækjastika fyrir neðan hana. Smelltu á fyrsta táknið og veldu hvernig myndin og textinn spila saman:

    • Í línu: myndin er eins og einn stór bókstafur í textanum
    • Orðskrið: textinn flæðir í kringum myndina
    • Skipta texta: textinn er fyrir ofan og neðan myndina
    • Fyrir aftan texta og Fyrir framan texta: myndin liggur undir eða yfir textanum

    Með Orðskrið getur þú dregið myndina hvert sem er á síðunni.

    Valkostirnir Í línu, Orðskrið, Skipta texta, Fyrir aftan texta og Fyrir framan texta
  5. Skerðu myndina

    Smelltu á myndina og svo á skurðartáknið á tækjastikunni efst. Svört horn og strik birtast á jöðrum myndarinnar. Dragðu þau inn til að skera burt það sem á ekki að sjást og ýttu á Enter til að ljúka skurðinum.

    Mynd í skurðarham með svörtum hornum
    Ábending: Það sem þú skerð burt er ekki horfið. Hægrismelltu á myndina og veldu Endurstilla mynd til að fá upprunalegu myndina aftur.
  6. Lýstu myndinni

    Hægrismelltu á myndina og veldu Skýringartexti. Spjaldið Myndavalkostir opnast hægra megin. Skrifaðu stutta lýsingu á því sem sést á myndinni. Skjálesarar lesa lýsinguna fyrir þá sem sjá ekki myndina.

    Spjaldið Myndavalkostir með skýringartextanum Blátt tjald við stórt vatn í skógi
    Ábending: Í Myndavalkostum getur þú líka snúið myndinni, breytt lit hennar eða gert hana ljósari, t.d. ef hún á að vera fyrir aftan texta.
ESC
↑↓ til að velja Enter til að opna Esc til að loka