Hér sjáum við hvernig þú kynnir með minnispunktana fyrir framan þig og hvernig þú birtir kynningu á vefnum svo hún spilist sjálf, t.d. sem myndasýning á skjá á ganginum eða á vef bekkjarins.

  1. Kynntu með skjámynd fyrirlesara

    Smelltu á örina við Skyggnusýning efst í hægra horninu og veldu Skjámynd fyrirlesara. Skyggnurnar birtast á tjaldinu en í sérglugga sérð þú minnispunktana, næstu skyggnu og klukku.

    Valmyndin við Skyggnusýning með Skjámynd fyrirlesara og Byrja frá byrjun
    Ábending: Ef þú tengir tölvuna við skjávarpa skaltu draga gluggann með minnispunktunum yfir á tölvuskjáinn og hafa skyggnurnar á tjaldinu.
  2. Birtu kynninguna á vefnum

    Opnaðu Skrá → Deila → Birta á vef. Undir Skipta sjálfkrafa milli skyggna velur þú hve lengi hver skyggna er á skjánum. Hakaðu við að hefja sýninguna strax og að byrja aftur eftir síðustu skyggnu ef hún á að rúlla í hring.

    Glugginn Birta á vefnum með stillingum fyrir sjálfvirka skiptingu
  3. Takmarkaðu við skólann og birtu

    Opnaðu Birt efni og stillingar. Hakaðu við Takmarka aðgang að eftirfarandi og veldu skólann ef aðeins fólk í skólanum á að sjá kynninguna. Smelltu svo á Birta og afritaðu tengilinn sem birtist.

    Undir Innfella færðu kóða til að setja kynninguna inn á vefsíðu, t.d. Google Sites.

    Birt efni og stillingar með Takmarka aðgang að eftirfarandi
    Ábending: Breytingar sem þú gerir á kynningunni birtast sjálfkrafa á vefnum. Til að taka kynninguna af vefnum opnar þú sama glugga aftur og hættir birtingu undir Birt efni og stillingar.
ESC
↑↓ til að velja Enter til að opna Esc til að loka