Google Slides heitir Skyggnur í íslensku viðmóti Google. Hér búum við til nýja kynningu, veljum þema, bætum við skyggnum og skrifum minnispunkta fyrir kynninguna.

  1. Búðu til nýja kynningu

    Farðu á slides.google.com og smelltu á Auð kynning. Við hliðina eru sniðmát, sum þeirra frá skólanum þínum. Smelltu á heitið efst í vinstra horninu og gefðu kynningunni nafn.

    Upphafssíða Google Skyggna með Auð kynning og sniðmátum
  2. Veldu þema

    Í nýrri kynningu opnast spjaldið Þemu hægra megin. Smelltu á þema til að fá liti, letur og bakgrunna á allar skyggnurnar í einu. Þú getur skipt um þema hvenær sem er með Þema á tækjastikunni.

    Spjaldið Þemu með þemanu Momentum valið
    Ábending: Á slidescarnival.com eru fjölmörg ókeypis sniðmát fyrir Google Slides. Veldu að nota sniðmátið í Google Slides og þá færðu þitt eigið afrit í Drive.
  3. Bættu við skyggnu

    Smelltu á örina við plúsinn efst til vinstri á tækjastikunni og veldu útlit, t.d. Titill og meginmál eða Titill og tveir dálkar. Ef þú smellir bara á plúsinn færðu skyggnu með sama útliti og síðast.

    Listi yfir útlit skyggna
    Ábending: Hægt er að breyta röð skyggnanna með því að draga þær til í listanum vinstra megin.
  4. Sæktu skyggnur úr eldri kynningu

    Opnaðu Skrá → Flytja inn skyggnur og veldu kynninguna sem geymir skyggnurnar. Hakaðu við þær skyggnur sem þú vilt nota og smelltu á Flytja inn skyggnur.

    Ef hakað er við Halda upprunalegu þema halda skyggnurnar útliti sínu. Annars fá þær þema kynningarinnar sem þú ert að vinna í.

    Glugginn Flytja inn skyggnur með einni skyggnu valdri
  5. Skrifaðu minnispunkta

    Smelltu á reitinn Smelltu til að bæta við minnispunktum fyrirlesara fyrir neðan skyggnuna. Minnispunktarnir sjást ekki á tjaldinu en þú sérð þá í skjámynd fyrirlesara þegar þú kynnir.

    Skyggna um Heklu með minnispunktum fyrirlesara fyrir neðan
    Ábending: Viltu að allur bekkurinn vinni í sömu kynningu? Búðu til eina skyggnu fyrir hvern nemanda, deildu kynningunni með bekknum sem Ritill og láttu hvern nemanda vinna á sinni skyggnu.
ESC
↑↓ til að velja Enter til að opna Esc til að loka