Stofna fund
Google Meet · Leiðbeiningar skref fyrir skref
Hér búum við til Meet-fund á tvo vegu: fljótlega á meet.google.com eða sem viðburð í Google Dagatali, sem er betra þegar fundurinn er á ákveðnum tíma og nemendur eða foreldrar eiga að fá boð.
-
Búðu til nýjan fund
Farðu á meet.google.com og smelltu á Nýr. Þar getur þú:
- Búa til fund sem á að halda seinna: þú færð tengil til að senda
- Byrja skyndifund: fundurinn byrjar strax
- Setja á áætlun í Google dagatali: opnar nýjan viðburð í dagatalinu
-
Afritaðu tengilinn
Með Búa til fund sem á að halda seinna birtist tengill á fundinn. Smelltu á afritunartáknið og sendu tengilinn, t.d. í tölvupósti eða á Google Classroom. Sami tengill virkar aftur og aftur.
Ábending: Gott er að hafa einn fastan tengil fyrir hvern bekk. Þá vita nemendur alltaf hvert þeir eiga að fara. -
Eða: settu fundinn í dagatalið
Í Google Dagatali býrð þú til viðburð, gefur honum titil og tíma og smellir á Bæta við Google Meet myndfundi. Bættu nemendum eða foreldrum við undir Gestir og smelltu á Vista. Þá fá allir boð með tenglinum.
-
Stilltu hverjir komast inn
Smelltu á tannhjólið við Meet-tengilinn. Undir Aðgangur að fundi velur þú:
- Opna: allir komast beint inn
- Traust: fólk í skólanum og boðsgestir komast beint inn, aðrir þurfa að biðja um aðgang
- Takmarkað: aðeins boðsgestir komast beint inn
Ábending: Kveiktu á Fundarstjórinn verður að tengjast á undan öllum öðrum. Þá geta nemendur ekki hist á fundinum áður en þú kemur. -
Tengstu fundinum
Opnaðu tengilinn. Áður en þú tengist sérðu mynd úr myndavélinni og getur kveikt eða slökkt á hljóðnema og myndavél. Í fyrsta skipti biður Chrome um leyfi til að nota þau. Smelltu svo á Tengjast núna.