Stjórnun fundar
Google Meet · Leiðbeiningar skref fyrir skref
Sá sem býr til fundinn er fundarstjóri. Í kennslu er mikilvægt að kennarinn stjórni hverjir komast inn og hvað nemendur geta gert, t.d. deilt skjá eða kveikt á hljóðnema.
-
Opnaðu stýringar fundarstjóra
Smelltu á lástáknið neðst í hægra horninu. Undir Leyfa virkum þátttakendum getur þú slökkt á því að nemendur geti deilt skjá, sent viðbrögð, kveikt á hljóðnema eða myndavél.
Ábending: Ef nemendur trufla með hljóðnemanum getur þú slökkt á honum hjá öllum í einu hér og kveikt aftur þegar þeir eiga að tala. -
Veldu hverjir komast inn
Neðar í sama spjaldi er Aðgangur að fundi. Með Takmarkað komast aðeins boðsgestir beint inn og aðrir þurfa að biðja um aðgang. Þú sérð beiðnirnar og ákveður hvort þú hleypir fólki inn.
-
Stilltu fyrir fram í dagatalinu
Sömu stillingar eru í dagatalinu. Opnaðu viðburðinn, smelltu á tannhjólið við Meet-tengilinn og stilltu Stýringar fundarstjóra áður en fundurinn byrjar. Smelltu á Vista.
Ábending: Ef þú átt fund með samkennara getur þú gert hann að aðstoðarfundarstjóra undir Gestir. Þá getur hann líka stjórnað fundinum.