Hér förum við yfir tækjastikuna neðst í Meet: hljóðnema, myndavél, að deila skjá, spjall og teljara.

  1. Kynntu þér tækjastikuna

    Neðst á skjánum eru, frá vinstri:

    • Hljóðnemi og myndavél: kveikja og slökkva
    • Deila skjá: sýna glærur, vefsíðu eða allan skjáinn
    • Viðbrögð: t.d. þumall upp eða klapp
    • Skjátextar: texti með því sem sagt er
    • Rétta upp hönd
    • Fleiri valkostir og rauði hnappurinn til að yfirgefa fundinn
    Tækjastikan neðst í Google Meet
    Ábending: Þegar þú deilir skjá getur þú valið einn flipa í Chrome. Þá heyrist líka hljóð úr myndböndum sem þú spilar og nemendur sjá ekki annað á skjánum þínum.
  2. Notaðu spjallið

    Smelltu á spjalltáknið neðst í hægra horninu. Í Skilaboð í símtali geta allir skrifað, t.d. spurningar eða tengla. Með Leyfa þátttakendum að senda skilaboð getur þú slökkt á spjallinu fyrir nemendur.

    Spjallið Skilaboð í símtali
    Ábending: Skilaboðin hverfa þegar fundinum lýkur. Afritaðu það sem þú vilt eiga.
  3. Breyttu útliti og bakgrunni

    Undir punktunum þremur (Fleiri valkostir) getur þú m.a. valið Breyta útliti til að sjá fleiri nemendur í einu og Bakgrunnar og áhrif til að gera bakgrunninn óskýran.

    Valmyndin Fleiri valkostir með Breyta útliti og Bakgrunnar og áhrif
  4. Settu teljara á skjáinn

    Smelltu á Fundarverkfæri (níu punktar) neðst í hægra horninu og veldu Teljari. Teljarinn sést hjá öllum, t.d. þegar nemendur fá fimm mínútur í verkefni.

    Fundarverkfæri með Teljara
    Ábending: Í sama spjaldi eru upptaka, skoðanakannanir og vinnustofur. Þau eru aðeins í boði í dýrari áskriftum af Google Workspace.
ESC
↑↓ til að velja Enter til að opna Esc til að loka