Rafræn foreldraviðtöl
Google Meet · Leiðbeiningar skref fyrir skref
Með bókanlegri fundadagskrá í Google Dagatali bóka foreldrar sjálfir tíma í foreldraviðtal og fá Meet-tengil sjálfkrafa. Þú þarft ekki að senda hverjum og einum fundarboð.
-
Búðu til fundadagskrá
Opnaðu Google Dagatal, smelltu á örina við Búa til og veldu Fundadagskrá.
-
Veldu lengd og tíma
Gefðu dagskránni titil, t.d. „Foreldraviðtöl 7. bekkjar“. Veldu Lengd fundar, t.d. 15 mínútur. Undir Tiltækileiki velur þú Engin endurtekning, dagsetningu og tíma. Dagatalið skiptir tímanum sjálft í viðtalstíma. Smelltu á Næsta.
Ábending: Athugaðu að tímabeltið sé rétt. Það stendur fyrir neðan tímana. -
Veldu Google Meet
Undir Staðsetning og fundur velur þú Google Meet myndfundur. Þá fær hvert viðtal sinn Meet-tengil þegar foreldri bókar. Undir Bókunareyðublað sérðu hvað foreldrar þurfa að fylla út. Smelltu á Vista.
-
Afritaðu tengilinn og sendu foreldrum
Dagskráin birtist undir Bókunarsíður vinstra megin. Smelltu á hana og svo á Afrita tengil. Sendu tengilinn til foreldra, t.d. í tölvupósti. Með Forskoða sérðu síðuna eins og foreldrar sjá hana.
-
Foreldrar bóka tíma
Foreldrar velja lausan tíma, skrá nafn og netfang og fá staðfestingu með Meet-tengli. Bókaði tíminn birtist í dagatalinu þínu og hverfur af bókunarsíðunni svo enginn annar getur bókað hann.
Ábending: Foreldrar þurfa ekki Google-aðgang til að bóka tíma. Ef þeir tengjast fundinum án skólaaðgangs biðja þeir um aðgang og þú hleypir þeim inn.